I see you baby
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 8 nóvember
17.10.2008 00:33:25 / hrefna

Ekkert varir að eilífu

Það er svo skrítið við þetta líf hvað manni finnst sumt svo sjálfssagt!..

Fólk sem alltaf hefur verið til og alltaf hefur verið svo hresst verður allt í einu svo veikt, fólk sem manni þykir vænt um! Fólk sem maður hefði átt að hitt oftar meðan maður gat.
En núna gæti það bara verið of seint! Ég lifi í voninni um að ég eigi eftir að fá annað tækifæri til þess að heimsækja þig!
:cry:


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 21:09:01 / hrefna

:D

PJAKKUR ER FLUTTUR ÚT!!!

ooog Andri var að fá nýtt rúm..:D sem er ótrúlega þægilegt!!

og ég hef ekkert annað að segja...

góða kreppu!!!

Hrefna:P


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 14:50:02 / hrefna

Ég er kvikindi

þetta blogg verður tileinkað Pjakk

Pjakkur er mjöööög pirrandi páfagaukur sem Karen á, hann býr í stofunni á fellsmúla 14, en þar sem að stofan er einnig herbergið mitt þá býr hann eiginlega í herberginu mínu:evil: ég verð að viðurkenna að hann er mjög sætur og lítill saklaus fugl ÞEGAR AÐ HANN ÞEGIR!! en þegar hann fer að tísta og tísta þá er hann ekki jafn sætur lengur, sérstaklega þegar hann fer að tísta þegar maður er að læra eða horfa á sjónvarpið en honum finnst mjög gaman að tala við alla í sjónvarpinu eða syngja með lögunum sem maður er að hlusta á. Meira að segja núna þegar ég er að pikka þessa bloggfærslu inn fer að hann að syngja með lyklaborðinu!

oft þegar ég og bróðir minn erum ein heima þá spáum við í því að hleypa honum útúr búrinu sínu og "óvart" hafa opna gluggana.. það væri nú synd... en þar sem að bróðir minn ætlar víst að giftast Karen (blablabla) þá gerum við það ekki;)
þetta endar oft þannig að Pjakkur fer inní sturtuklefan því að þar heyrist minnst í honum.

stundum hef ég ákveðið að reyna vera góð við Pjakk og fer upp að búrinu hans og tala við hann, set hendina inn og reyni að láta hann standa á puttanum á mér, hann gerir það svo sem en um leið og maður hreyfir hendina þá mætti halda að hann fái hjarta áfall, svo það er ekkert hægt að leika við hann.. sem sé hundónýtur fugl!!:|

þetta er sem sé ferilskrá Pjakks.. einnhvern sem langar í Páfagauk? ;)

Hrefna litla dýra-unandi!


ps. ekki taka þessu bloggi þanig að ég hati grey skepnuna, ég hata bara tístið hans





» 7 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 17:34:39 / hrefna

UNNUR

jeyjj ég er komin með lesanda;) þetta blog er sko tileinkað Unni minni:)

það er allt búið að vera brjál seinstu daga og helgar.. það er alltaf eitthvað að gerast um helgar og svo er skólinn hina dagana og þótt að ég sé ekki í mörgum tímum þá er alveg þónokkuð að gera, ég er t.d. að fara í 2 próf á morgun:/

um seinustu helgi fór ég í 2 partý.. eða 2 afmæli, á föstudaginn fór ég í afmæli til Helga sem ég er að vinna með, það var rosalega gaman, sérstaklega því að þar hitti ég fólk sem er að vinna á domions en ég hef ekki séð það áður, gaman að hitta fólk sem maður er að vinna með:) lenti líka í skrítni lífsreynslu.. það kom gaur til mín og sagði við mig.. vá þú ert með fallegt hár og svo tók hann lokk og þefaði af honum... sooldið spez, verð ég að segja :/

svo á laugardaginn fórum við Andri heim til Arnars að borða og það var mjög gaman, þar sem að á miðjuborðinu var "eldarvél" rosalega lítil og með eld.. og hver og einn fékk sína pínulitlu pönnu og átti að elda matinn sinn sjálfur, þetta gekk allt vel þangað til að Arnar næstum því kveikti í húsinu með því að blása á sinn eld og þá dreiðfist bara úr eldinum.. haha en það reddaðist allt og engin meiddist, þótt að Dagmar hafi verið komin hálfa leið niður stigan!;)
svo seinna um kvöldið fórum við til Bjögga í afmæli og svo fórum við bara heim!

een núna ætla ég að skella mér í ræktina og gera mig að vöðvabúnti.. aaargg


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 17:33:58 / hrefna

bloggin sem ég bloggaði ekki

jæja.. ég veit að ég ætlaði að vera duglegri að skrifa hérna inn en ég hef eiginlega bara ekki haft tíma:) eða bara gleymt því haha.. svo hérna eru nokkrir hlutir sem ég bloggaði EKKI um en ég hefði alveg getað gert
  • risastórt blogg um tyrkland, því að þar gerðist MARGT skemmtilegt og svo margt sem er ekki jafn skemmtilegt kannski...en allavega það eru myndir á myspace síðunni minni sem ég tók úti:)
  • þegar ég byrjaði aftur í skólanum...:/
  • menninganótt þegar að Helga og Halldóru komu LOKKSINS að djamma með mér í reykjavík.. ég og Halldóra ætluðum líka að gera það í fyrra en það "mistókst" en allavega það var mjög gaman:)
  • ferðina á akureyri sem ég og Andri sæti fórum til þess að heimsækja Diddu sem er nýbúin að flytja þangað:) og byrjuð í HA;) ha hvað
  • leiklistaræfinguna sem ég fór á um daginn, ég ætla sem sé að vera með í leiklist þetta árið.. en við megum hvort sem er ekkert segja hvað við erum að gera þannig að það er engin skaði skeður þótt að ég hafi ekki bloggað um það...
já þetta eru svona nokkrir punktar.. svo hefur líka auðvitað vantað blogginn mín þar sem ég skrifa rosa mikið um nákvæmlega ekki neitt..:S een ég ætla að reyna að vera duglegri hér með.. sem sé reyna aftur;)

Hrefna... aka Siggahvalur;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 10:51:17 / hrefna

Blámi komin með 09

í gær fór ég á Mamma Mia í bíó, góð mynd fannst mér, eða reyndar góður söngleikur frekar, því mér finnst alltaf eins og söngleikir séu ekki það sama og myndir, eða úff nú veit ég ekki hvernig ég á að úskýra þetta, svo ég ætla bara að sleppa því.
besta við þessa mynd var að sjá Pierce Brosnan syngja;) uppáhaldsbondinn bara farin að syngja.. haha nokkuð gott! svo fór ég að hugsa, að það væri eins gott að lífið væri ekki söngleikur, þá þyrfti maður alltaf að sitja heima og reyna að læra texta, því það væri soldið vandræðalegt ef að vinkona þín byrjaði allt í einu að syngja og dansi og þú bara ehh ég kann ekki textan:$

áðan fór ég til læknis og núna er ég að drepast í hnénu eftir hann, því að hann þurfti að láta verkinn koma til þess að geta sagt mér hvað væri að:evil: svo hann beygði og teygði löppina í allar áttir og ekkert gerðist, svo ég hélt hann því niðri og sagði mér að spenna og ááááái, það var sko vont. en hann gat sagt mér hvað væri líklegast að mér, ég er örugglega með mjúkt brjóska undir hnéskelinni, sem svo nuggast við hnéð sjálft og það gerir sársaukan, svo að ég á að gera eitthverjar æfingar til þess að styrkja vöðvan sem hnéskelin er í og ef það lagast ekki eftir 2 mánuði þá á ég að koma aftur til hans! vona bara að það lagist! læknir sagði líka að ég væri með mjööög sterk liðbönd..liggaliggalái:P

svo fór ég með ástina mína hann Bláma í skoðun:D kom inn og strákurinn sagði við mig, ertu búin að laga það sem var að? (því að hann fékk endurskoðun síðast) og ég bara já, svo eftir svona 5 mín kallaði hann á mig og sagði gjörðusvovel, þetta er mjög vel gert hjá ÞÉR! haha eins og ég hefði bara skottað mér undir bílinn og sí svona skipt um bremsudiska og dempara, lítið mál fyrir hana Hrefnu;)

Hrefna, sem ætlar að dúlla í kringum sjálfa sig í sólinni í dag:P

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 20:38:04 / hrefna

19 ára á enda lífsins?

 

Í dag líður mér illa, það er bara svona með suma daga, sumir dagar eru erfiðir og sumir dagar eru góðir. Dagarnir inni á milli þessa daga eru merkingarlausir, það eru þeir dagar sem maður gleymir hvort sem er, bara einn af þessum dögum sem við áttum í lífinu.

 

Afhverju er ég svona hrædd við allt? Ég þori varla að taka ákvörðun lengur vegna hræðslu við að hún sé röng og að ég eigi eftir að sjá eftir henni lengi, ætli þetta sé ekki komið útaf því að ég er vön að taka rangar ákvarðanir, ég vona bara að á endanum eigi ég eftir að taka þá réttu. En þangað til þori ég ekki að taka ákvarðanir og þess vegna eru litla líkur að ég eigi eftir að taka þá réttu! Vá hvað maður er ruglaður.. ég er 19 ára og mér finnst eins og lífið sé á enda, er það ekki þannig að ég má taka rangar ákvarðanir? Því að ég hef allt lífið til þess að reyna bæta úr því? Afi minn er meira en helmingi eldri en ég, svo ef hann hefur erft mér aldursgenið sitt þá ætti ég að hafa meira en langan tíma til þess að reyna láta mér líða betur!

 

Ef ég þekkti sjálf mig betur þá vissi ég örugglega hvað ég ætti að gera, en máli er að ég þekki sjálfa mig ekki svo vel, ég veit ekkert hvað ég vil, ég veit ekkert hvað ég á að gera og stundum veit ég bara ekkert hvernig mér líður. Þetta er stórundarlegt því að ég er víst manneskjan sem hef verið með mér oftast, já, eiginlega bara ALLTAF. Núna ætla ég að fara koma mér í það að kynnast mér, undarlega sagt en ég þarf þess.

 

ég vona sjálf að mér fari nú að líða eitthvað betur:)

Hrefna sem ætlar að reyna lífga við þess síðu!


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 15:06:43 / hrefna

Dagurinn í dag

Dagurinn í dag er mjög sérstakur, þar sem að hann kemur bara á 4 ára fresti, skemmtilegt að eiga afmæli í dag, en einn strákur í bekknum hans Andra á einmitt afmæli í dag:) til hamingju með það!

ég á alveg eftir að koma með blogg um ALLT;) til dæmis stóru tónleikana sem að ég og Andrea héldum í Austurbæ um daginn, í hinni stórmerkilegu árshátíðarviku MS, reyndar vorum við bara að taka þátt í Baulunni, sem er söngvakeppni MS, reyndar á ekki að vera neitt bara í þessari setningu, þar sem að þetta var alveg stórmál, tók rosalega á taugarnar, þar sem að við vorum að pissa í okkur af stressi áður en við fórum á sviðið, en við fengum okkar 5 mínútna frægð og mikið rosalega var gaman að koma niður af sviðinu, besta tilfinning í heimi:D kom reyndar flatt niður á mér í dag að hafa teki þátt í þessari keppni, þar sem að Katrín og Silja voru að gera skáldakynningar í íslensku og voru einmitt að tala um skáldið sem samdi lagið sem við sungum á keppninni, þannig að ég var klöppuð upp í miðjum tíma til þess að syngja, og jú ég neita ekki aðdáendum og söng eitt erindi, en ég var líka örugglega soldið MIKIÐ rauð á meðan:P

annars var árshátíðarvikan mjöög skemmtileg, þessi árshátíð var ein skemmitlegasta sem ég hef farið á, hún var haldin á gauk á stöng og það var endalaust gaman, þótt að ég hafi lent á milli í slagsmálum og verið öll blá og marinn daginn eftir og að Hjörtur gaf mér olnbogaskot í augað og ég var bólgin eftir það þá var ógeðslega gaman:) ég hlakka mikið til Árshátíðar Dominos, en hún verður einmitt haldin á gauknum! vel valið:P

annars hafa seinstu 2 vikur verið rólegar, ég var veik vikuna eftir árshátíðinni, vil kenna stressinu um;) og svo djömmuðum við helgina eftir, útaf afmæli Diddu:D og vegna þess að við vorum víst búin að lofa Snorra nokkuð oft að koma með honum á English pub, sem er að hans sögn besti staður í heimi, en ég veit ekki hversu mikið sammála ég er honum, gæti örugglega verið skemmtilegri ef að ég og Andri hefðum ekki verið svona þreytt eftir djammið daginn áður og vinnunna, þar sem að mega vika var í gangi og allt brjálað að gera á dominos!! ekki nógu sniðugt!

svo styttist óðum í páskanna, en þá ætlum við Andri uppí sveit að vinna til þess að safna okkur pening, við æltum nefnilega til London eftir prófin í Maí að hafa það cosý:) það verður indislegt!

í dag dó, Þorvaldur annar strákanna sem lenti í bílsslysinu á Akranesi um daginn:( votta ég fjölskyldu hans samúð mína!:cry: ég þekkti Þorvald soldið síðan úr grunnskóla og finnst rosalega skrítið að hann sé farinn frá okkur! ótrúlegt að hugsa til þess að hver dagur gæti verið þinn síðasti og hvet ég fólk til þess að opna augun núna og sjá hvað þau eiga, þar sem að ekkert varir að eilífu!

Sigríður Hrefna, já í dag nota ég Sigríðar nafnið!;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 20:19:24 / hrefna

helgin

Ég vil byrja þetta blogg á að segja ykkur frá því að ég er búin að breyta "um mig" á síðunni.. endilega tékkið á falleguheitunum;)

á laugardaginn.. eða sem sé í gær fórum við Andri uppí sveit í afmæli hjá Kötu, þetta var bara snilld út í gegn, hah Andri að hitta allt þetta skrítna sveitafólk og það var að skemmta sér með áfengi í þókkabót.. það er alltaf skrautlegt.. en rosalega gaman! Agga tók hann í yfirheyrslu, Karvel ætlaði að hætta með honum fyrir mig, hann var plataður til þess að taka í spil, sá allt skrítna fólkið dansa eins og móngó og þetta var allt svona;) ég vona samt að hann hafi skemmt sér vel, ég veit að ég gerði það:) minnir mig á það

til hamingju með 45 á afmælið Mamma Kate #2

já það kom sem sé í ljós í gær að Embla er mamma #1, Kata er mamma #2 og Sigga er mamma #3! þetta hefur alltaf verið vandamál, því þær voru ekki sammála á röðinni á þessu, en Sigga gaf undan í gær í ljósi þess að hún er að vera amma en Kata ekki! 

Andri fékk sem sé að kynnast 3 tengdamömmum í gær.. stuð;)

svo vöknuðum við kl 11 í morgun og brunuðum í rvk því Andri var að fara vinna:) og ég er búin að vera í letikasti í dag!:P

Hrefna 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 19:37:08 / hrefna

lylklamálið mikla!

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu eftir þau 18 ár og nokkra mánuði sem ég hef þekkt Pétur bróðir minn að hann er kolruglaður!!.. en reyndar á mjög góðan hátt!

Núna var hann t.d. að koma úr IKEA og þar keypti hann alveg heilan helling! Af því má nefna vöfflujárn sem hægt er að gera TVÆR vöfflur í einu (auðvita alveg nauðsynlegt því að við erum svo mörg á þessu heimili, heil 3, og væri leiðinlegt að þurfa bíða lengi eftir vöfflunum), 2 skurðabretti en við eigum eitt nú þegar að hingað til hefur það virkað vel, nokkra hnífa sama þó að ég og Karen fjárfestum í einu þannig um daginn, eitthvað gult plast sem er með svona tennum eitthvernvegin.. get ekki útskýrt en ég veit ekki hvað maður skyldi gera við þetta og hann veit það ekki heldur, honum langaði bara í þetta.. svo keypti hann eitthverja flösku og fullt af fleira drasli og þar sem að eldhúsið er nú ekki mikið stærra en hornskápur á venjulegum heimilum veit ég ekki alveg hvar hann ætlar að koma þessu öllu fyrir, býst við að hann geymi þetta undir rúmi!

En þar sem hann er svo æðislegur hann bróðir minn er ekki annað hægt en að hlæja af þessu með sjálfum sér, hann er svo góður í sér að hann ætlaði bara að gleðja sig og sína.

Í gær var ég að stíga útúr bílnum hennar Karenar og þá sá ég mér til undrunar að það stóð lykill útúr skránni á næsta bíl, mér fannst þetta alveg rosalega skrítið svo að ég í góðmennsku minni tók bíllykilinn með mér inn, svo að eitthver froðufellandi róni stæli nú ekki bílnum og tveimur barnastólum sem voru aftur í. Þegar ég kom inn hringdi ég í 112 og fékk að tala við lögregluna, maðurinn sem svaraði fyrir hönd löggunnar var alveg undrandi í röddinni yfir þessu sem ég sagði við hann. Í fyrstu hélt ég að orðaforði hans inniheldi ekki fleiri orð en góða kvöld og ha, fyrirgefðu ha! En eftir útskýringar mínar skrifaði hann eitthvað niður, sagði mér að koma með lykilinn á lögreglustöðina þakkaði mér svo fyrir og skellti á! Mér finnst þetta svolítið skrítið, því að ef ég ætti þennan umrædda bíl með verðmætu barnastólum í og eitthver hefði fundið lykilinn minn þá myndi ég vilja að það yrði hringt í mig, það væri rosalega einfalt, þar sem það er hægt að sjá hver eigandinn er og hringja bara í hann en það var ekki til í stöðunni hjá löggunni. Hrefna litla sniðuga dó sko ekki ráðalaus og skrifaði miða sem ég setti síðan inn í bílinn og læsti, svo í morgun þá kom maður og tók lyklana.. en svona eftir á hugsaði ég.. hvernig á ég að vita að þetta hafi verið maðurinn sem virkilega átti bílinn? Gat hann ekki bara hafað séð miðan og hugsað hmmm ég ætla þykjast eiga bílinn.. ekki alveg rosa sniðugt hjá mér!..:S

Ég fór líka í Kickbox.. það er alveg geðveikt gaman og þvílikt mikil útrás sem maður fær við þetta, finn það alveg að ég þarf að fara æfa eitthvað aftur, alltof gott að hreyfa sig!

Hrefna “sniðuga”


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 19:52:05 / hrefna

2007..pínu

vegna margra áskoranna þá hef ég lokksins ákveðið að skrá eina færslu hérna.. þetta hefur verið mikið umhugsunarefni fyrir mig en ég ákvað að slá til

ég er aftur byrjuð í skólanum þótt að ég hafi nú ekki mætt vel hingað til:S mætti til dæmis ekki í dag vegna veikinda.. ekki nógu gott.. meðavið að ég á ætlaði að reyna að mæta betur þessa önn heldur en seinstu!..

2008 er líka gengið í garð.. sem mér finnst alveg ótrúlegt því mér finnst eins og í deginum á undan hittefyrradag hafi verið 2006.. lífið gengur of hratt fyrir sig og maður gerir alltaf fleiri og fleiri misstök.. kemur vonandi að því á endanum að ég geri það rétta og þá lokks verður allt gott!

á árinu 2007 gerðist samt margt.. ég kynntist mörgum yndislegum manneskjum.. til dæmis Andreu, Önnu, Báru og Rebekku sem eru einar af bestu vinkonum mínum núna, þær hjálpuðu mér í gengum margt á árinu:) einnig kynntist ég Andra sem er einn besti strákur sem ég hef kynnst og Hilmari sem kemur rétt á eftir Andra í góðleika:)

ég fékk líka nýjan spegil á bláma minn:D:D núna er bara óhljóð í honum sem á eftir að laga, en þetta er allt að koma, hann verður vonandi sem nýr árið 2009 þegar hann verður 12 ára.. haha

.. æjjh ég er reyndar ekki í miklum bloggfíling.. þannig að þið verðið að láta þetta nægja! en ég lofa ykkur aðdáendur mínir að bloggin verða fleiri á næstu misserum;)

takk fyrir árið og fyrirgefið allt

Hrefna! 


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 15:57:43 / hrefna

85 og tiesto:)

það er búið að vera of gaman í seinustu viku:)

byrjaði allt á mánudaginn, þegar 85 vikan byrjaði í skólanum, þá mætir maður svaka skrautlegur í skólan! við stelpurnar vorum rosalegar hehe aðalgellurnar í skólanum náttúrulega í flottustu fötunum, held samt að Bára hafi unnið, var bara í fötum sem hún átti þegar hún var 6 ára, og passaði sko í þau;) bara skvísa!

á þriðjudaginn var svo bílabíó, ghostbusters:P svaka stemmning hjá mér og Andreu í bílnum mínum:P með sæng og alles:P kom smá greddumóða hjá okkur, en það er bara því að Andrea er svo heit skilöru;) stelpurnar hinar beiluðu og fóru bara heim! suss

miðvikudagurinn fór í það að sauma kjól:P hehe bara flottur, Anna Margrét saumaði sko föt á okkur stelpurnar:P geðveikt dugleg, reyndar voru Andrea og Bára voru reyndar í fötum sem Anna saumaði á þær í fyrra en það var samt geðveikt flott! minn kjóll var rosalegur, reyndar smá þrööööngur, en ég lifði það af;) myndir verðið þið bara að skoða á myspaceinu hjá Önnu Kolbrúnu og Önnu Margréti!

Fimmtudagurinn var svo bestur, þá var ballið, ég fór í fyrirpartý hjá Hildi sem var mjög gaman! ballið var svo rosa skemmtilegt líka, allir svaka fínir, litagleðin náttúrulega að fara til fjandans en það var bara gaman:P

Föstudagurinn var reyndar betri en fimmtudagurinn, svo má segja að hann hafi verið bestastur:P hehe þá fórum við á tiesto, ég, Andrea, Anna Kolbrún og Andri hittumst heima hjá mér og drukkum tequila;) svo við vorum nokkuð hress þegar við mættum á broadway þar sem manni var hent inn, nokkuð skondið hélt að dyraverðir væru í því að henda fólki út, en nei okkur var sko hent INN! allir eitthvað að drífa sig, inni var bara neonljós og læti, Anna keypti ljós handa okkur svo að við vorum ekki síðri en hinir, svo á eitthverjum tímapunkti þá eiðilagðist annað ljósið en það helti Andrea bara yfir sig þessu bleika sulli:S Anna Kolbrún var orðin smá full, svo að vinur hennar kom og sótti hana! svo dönsuðum við bara af okkur rassinn við Tiesto og skemmtum okkur rosavel!

laugardaginn fórum við öll að vinna, nema Anna reyndar, svo allir voða ferksir:P svo um kvöldið horfðum við á spólu:)

og núna er það slökun:P hehe er reyndar að fara gera Njáluverkefni í kvöld, hlakka bara til:P eða ekki..

svo byrjar fjörið aftur á föst með afmælinu hennar Áslaugar:)

Hrefna djammstrumpur númer 1!;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 20:14:42 / hrefna

blogg blogganna;)

JÆJA!!!
er ekki komin tími fyrir eitt alvöru blogg hérna??
til að byrja með langar mig til þess að óska afmælisbörnum dagsins til hamingju með afmælið
 
Mamma til hamingju
Kalli til hamingju
 
;)
 
seinstu dagar hafa verið viðburðaríkir!.. skólinn er búin að vera brjálaður, er held ég búin að fara í próf á hverjum degi seinstu 2 vikur:S úr þessum prófum hef ég fengið 4,5 og uppí 10.. svo að þetta er bæði gott og vont!
 
á Laugardaginn seinasta fór ég í eitt besta partý sem ég hef farið í, heima hjá Andreu kjútípæ, fullt af fólki, sumt þekkti ég ekki rass en svo var líka nokkuð mikið af fólki sem ég þekkti! mjöööög margt gerðist í þessu partý hehe mikið af slúðri, sem á kannski ekki alveg inn á þessa síðu, gæti sært suma ef ég fer að segja frá einkamálum hérna!
 
myndir af þessu skemmtilega partý eru inni á www.fotki.com/hrefnz svo endilega ef þig langar að kíkja á sjúskaðar og spennandi myndir þá kíktu;)
 
á morgun er ég að fara í bústaðarferð með bekknum mínum á Hellu, er í rosa góðum bekk, engin leiðinlegur sem ég hef tekið eftir og held að allir séu bara svona semí vinir:) sem er nice, breyting frá því í fyrra, var alveg ágætur bekkur þá en skiptist í smá hópa! á laugardaginn næsta er ég svo að fara í dominos partý.. held ég! ekki alveg ákveðið, en þetta byrjar allt í kvöld með bjórkveldi;) hehe ekkert slakað á hérna! enda engin ástæða til þess, við erum ungar og eigum að skemmta okkur, við hvílum okkur bara á elliheimilinu eða í gröfinni, til þess var elli og dauði fundin upp, svo að unglingar gætu skemmt af sér rassgatið;)
 
svo er 85 vikan í næstu viku:D
 
í dag er ég búin að vera passa litla bróðir minn, þar sem foreldrar mínir gerðu sér bæjarferð og vá hvað hann er orkumikill lítill bolti! hann er búin að talaogtalaogtalaogtala og villl endalaust vera að sýna mér eitthvað eða segja mér eitthvað.. t.d. kann ég ALLT um pokemona núna, alveg allt sko. Guðmundur kenndi mér nebbla.. svo ef þig langar að vita eitthvað um þá, þá vonandi veistu síman hjá mér.. bjallaðu bara;)
 
ég hitti Unni beibí í kringlunni um daginn:) lokksins, það er eins og Selfoss hafi bara étið þessa stelpu maður sér hana ALDREI!, vona nú að hún skelli sér á gleðifundinn! annað tek ég ekki í mál! já vá styttist í gleddarann maður! alvöru djamm uppi í sveit;) það er eitthvað sem engin má láta sig vanta á! svo allir að skella sér:D verður stuð að hitta alla gömlu skólafélagana.. hehe
 
en jepp, þetta blogg er aðeins innihaldsmeiraenseinustublogg sem er goottt:) en ég tek samt glöð við kvörtunum, hringið bara í ritarann minn, hann sér um svoleiðis;)
njótið helgarinnar, ég ætla allavega gera það:D
Hrefísen
 
ps. klepparar kíkjiði á www.blog.central.is/89kleppur

» 9 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 16:00:47 / hrefna

ömóbloggtími

ég var að breyta um mig.. ;) endilega tékkið
 
ég og Andrea fórum áðan og keyptum okkur miða á tiesto! 
það verður vonandi gaman:P
 
herru þetta verður ömurlegt blogg bara ok?
allir sáttir með það?
því ég bara nenni ekki að skrifa meira!
ætla að fara að læra keðjuregluna fyrir stærðfræðipróf
 
Href:P 

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 20:15:10 / hrefna

punktablogg

maargt gerst síðan ég bloggaði seinast.. svo að ég ætla nú að skrifa eitthvað hérna.. svo þið vitið hvað er að gerast í lífi mínu;)  með nokkrum punktum!!

  •  ég er flutt inn í fellsmúla:D
  • skólinn er á fullu, brjál að gera:S
  • októberfest var um daginn, brjálað stuð;)
  • búin að mæta á nokkur bjórkvöld, eitt var sérstaklega skemmtilegt, þar sem ég og Andrea enduðum á surprise fylleríi;)
  • búin að djamma soldið mikið:S een það er bara skemmtilegt;)
  • búin að eignast 4 rosalega góðar vinkonur, Báru, Andreu, Önnu og Rebekku, þær eru æði!
  • orðin vaktstjóri á dominos
  • búin að kaupa mér sæng;)
það er reyndar margt annað búið að gerast.. en ég ætla að fara að vanda mig við að blogga meira svo að ég segji ykkur alltaf fresh frá því sem gerist;) ekki old news.. eins og ég held að allir sem skoði þessa síðu viti þetta allt fyrir;) en hvað með það.. ég er allavega búin að blogg.. er farin að lesa Njálu.. 
 
Hrefna overandout;) 

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 36570
Dagsetning
10. febrúar 2012